Sviðsetning Benedikts Erlingssonar leikstjóra brengluð.

Illska manna hefur í gegnum aldirnar opinberast æ ofan í æ í því hatri sem þeir hafa sýnt einni þjóð og stöðugt viljað útrýma henni. Hún heitir ekki Palestínumenn, heldur Ísrael.

Benedikt Erlingsson skrifar gegn Ísrael í pistli sem sem hann birti á facebókarsíðu sinni og var einnig birt í gær á visir.is.

Heimsbyggðin reynir enn einu sinni að útrýma Ísrael. Hún berst gegn fjöld þjóða fyrir lífi sínu, eins og oft áður.

Benedikt er hins vegar ekki að verja Ísrael, eins og sjálfsagt hefði verið. Hann setur upp þá sviðsmynd að Ísraelmenn og fjandmenn þeirra hafi skipt um hlutverk sem þeir hafa auðvitað ekki gert, en hann segir í lok pistils síns:

„Því ef hægt er að útrýma heilli þjóð fyrir framan nefið á okkur án þess að við sem fólk, þjóð eða ríki andæfum af öllu afli þá köllum við yfir heiminn og okkur sjálf hræðilegt karma þar sem við gætum orðið næst. Þá höfum við ásamt gerendunum skapað heim þar sem hægt er að fremja þjóðarmorð og komast upp með það. Og hver veit hverjum klukkan glymur næst.“

Svo segir Guð miskunnari Ísraels:

„Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði, skal mín miskunnsemi við þig ekki færast úr stað, og minn friðarsáttmáli ekki raskast, segir miskunnari þinn, Drottinn.

Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér, skulu verða sigurvænleg, og allar tungur, sem upp rísa gegn þér til málaferla, skalt þú kveða niður. Þetta er hlutskipti þjóna Drottins og það réttlæti, er þeir fá hjá mér segir Drottinn.“ (Jes. 54:10;17).


mbl.is Dæmdir fyrir árás á ísraelskt fyrirtæki í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útilokum okkur ekki frá Ísrael sem ber okkur inn um Gullna hliðið Guðs ríkis

Ísraelsmenn munu aldrei hafna okkur eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vill, að við höfnum Ísrael.

Verum þakklát Guði fyrir tækifæri sem okkur er gefið, í gegnum Ísrael, til að fá hlutdeild í Ríki Guðs. Jesús sagði: Hjálpræðið kemur frá Gyðingum.

"Ef frumgróðinn (Ísrael) er heilagur, þá er einnig deigið það. Og ef rótin (olíuviðarins) er heilög, þá eru einnig greinarnar það. En þótt nokkrar af greinunum hafi verið brotnar af, og hafir þú, sem ert villiolíuviður, verið græddur inn á meðal þeirra og sért orðinn hluttakandi með þeim í rótarsafa olíuviðarins, þá stær þig ekki gegn greinunum. Ef þú stærir þig, þá vit, að þú berð ekki rótina, heldur rótin þig." (Róm. 11:16-18).

Rótin, Ísrael með konung sinn Jesú, er sá eini sem getur borið þig inn í Ríki Guðs. Þess vegna reynir Djöfullinn stöðugt að egna þig gegn Ísrael, hjálpræði þínu. Viltu þiggja eilífa lífið þótt það komi í gegn um Ísrael?


mbl.is Segir „óeðlilegt“ að Ísrael taki þátt í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er upprisan og lífið

Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.

Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja.

Trúir þú þessu? (Jóh. 11:25-26).

Spurning dagsins til þín, frá Jesú Kristi.


mbl.is Ljósið vinnur alltaf gegn myrkrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáið þar konung yðar! Á ég að krossfesta konung Ísraels?

Þá segir Pílatus við hann: Þú ert þá konungur?

Jesús svaraði: Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn, að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum, heyrir mína rödd. (Jóh. 18:37).

Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við Gyðinga: Sjáið þar konung yðar! Þá æptu þeir: Burt með hann! Burt með hann! Krossfestu hann! Pílatus segir við þá: Á ég að krossfesta konung yðar? (Jóh. 19:14-15).

Sömuleiðis gjörðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og sögðu hver við annan: Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Stígi nú Kristur, konungur Ísraels, niður af krossinum, svo að vér getum séð og trúað. Einnig smánuðu hann þeir, sem með honum voru krossfestir. (Mk. 15:31-32).

Svo segir Drottinn, konungur Ísraels og frelsari, Drottinn allsherjar: Ég er hinn fyrsti og ég er hinn síðasti, og enginn Guð er til nema ég.

Minnstu þess, Jakob, og þú Ísrael, því að þú ert þjónn minn. Ég hefi skapað þig til að vera þjón minn, þú Ísrael, munt mér aldrei úr minni líða! Ég hefi feykt burt misgjörðum þínum eins og þoku og syndum þínum eins og skýi. Hverf aftur til mín, því að ég frelsa þig.

Fagnið, þér himnar, því að Drottinn hefir því til vegar komið, látið gleðilátum, þér undirdjúp jarðarinnar. Hefjið fagnaðarsöng, þér fjöll, skógurinn og öll tré, sem í honum eru, því að Drottinn frelsar Jakob og sýnir vegsemd sína á Ísrael. (Jes. 44:6; 21-23).


mbl.is Loftárás gerð á Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósk Vigdísar - Ósk Guðs - Ósk Hallgríms - Ósk mín

Vigdísi Finnbogadóttur til hamingju með 95 ára afmælið í dag.

Vigdís ávarpar okkur, þjóð sína, í dag af mikilli visku, þegar hún skorar á Íslendinga að standa vörð um þau ómetanlegu verðmæti, sem okkur hafa verið fengin í hendur af Guði almáttugum.

Úr ávarpi hennar má lesa að ekkert sem við höfum er sjálfsagt. Allt eru gjafir. Það er gjöf Guðs að fá að draga Andann. Það er ekki sjálfgefið, fremur en að njóta náttúru Íslands, og hafa tækið á tungu okkar sem er Íslenskan.

Vigdís segir að Íslenskan sé lífið í menningu okkar. Það þýðir að hverfi Íslenskan þá hverfur þjóðin.

Ég held að heitasta ósk Vigdísar og sr. Hallgríms Péturssonar fylgist að:

Gefðu að móðurmálið mitt,

minn Jesú, þess ég beiði,

frá allri villu klárt og kvitt

krossins orð þitt út breiði

um landið hér

til heiðurs þér,

helst mun það blessun valda

meðan þín náð

lætur vort láð

lýði og byggðum halda.


mbl.is Verðmæti geta glatast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael er fórnarlambið

Steinunn Björnsdóttir fyrirliði:

„Við gerum okkur samt grein fyrir því hver eru fórnarlömbin í þessum aðstæðum.

Ég vil ekki kvarta of mikið. Maður skilur reiðina og maður skilur að hún verði að beinast eitthvert. Einhverjir vilja beina henni að okkur. Við vitum hvar þessi gagnrýni á heima.

Við erum mjög glaðar að þetta sé búið.“

Er þetta búið, erum við laus allra mála?

 

„Því að páskalambi okkar er slátrað (fórnað), sem er (Ísrael) Kristur.

Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi eða súrdeigi illsku og vonsku heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.“ (1. Kór. 5:7-8).

Svo segir Guð við Ísrael:

„Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði, skal mín miskunnsemi við þig ekki færast úr stað, og minn friðarsáttmáli ekki raskast, segir miskunnari þinn, Drottinn.

Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér, skulu verða sigurvænleg, og allar tungur, sem upp rísa gegn þér til málaferla, skalt þú kveða niður. Þetta er hlutskipti þjóna Drottins og það réttlæti, er þeir fá hjá mér segir Drottinn.“ (Jes. 54:10;17).

Ísrael, Jesú Kristi, verður ekki lengur fórnað. Sá tími náðar sem Guð gaf þjóðunum er í þann veginn að líða undir lok. Eftir það er of seint að iðrast.

Náðartími Ísraelsmanna er að hefjast, þeirra tækifæri er að koma til að iðrast og taka við Jesú sem frelsara sínum.

Eyðing heimbyggðarinnar fer brátt í hönd og mun þá Konungur Gyðing, Jesús Kristur birtast, setjast í hásæti sitt í Jerúsalem og taka völdin, ekki aðeins í Mið-Austurlöndum, heldur í heiminum öllum.


mbl.is Gerum okkur grein fyrir hver fórnarlömbin eru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÆR hafa kallað yfir okkur bölvun, með sama hætti og Eva gerði í Eden

Af því að Kvennalandslið Íslands spyr: Hvers vegna fær Ísrael enn að taka þátt í alþjóðlegum keppnum?

Svarið er: Vegna þess að enginn er rétthærri Ísrael, sem útvalinn er af Guði til að vera hjálpræðisvegur fyrir mennina.

Jesús sagði: Hjálpræðið kemur frá Gyðingum. (Jóh. 4:22).

Þess vegna hatar Djöfullinn Ísrael og Gyðinga svo ákaft. Með lygum, sem líkist sannleika, táldregur hann þjóðirnar með lygaáróðri gegn Ísrael, og þannig stefnir hann okkur á glötunarveg.


mbl.is „Hvers vegna fær Ísrael enn að taka þátt í alþjóðlegum keppnum?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi lendum við ekki í „ÞESSU“ aftur!

Þessi setning kom ekki úr munni þjálfar Ísraelska kvennalandsliðsins.

Nei, setningin kom frá þjálfara Íslenska landsliðsins. Ekki þótti taka því að spyrja þann fyrrnefnda, hvernig honum hafi fundist atgangurinn í kringum leikinn.

Það eru Ísraelsmenn sem hafa lent í „ÞESSU“ aftur og aftur í árþúsundaraðir. Ætli að þeir séu eitthvað sáttari við hina neikvæðu athygli en Íslendingar? Nei!

Hvers eiga þeir að gjalda? Jú, þeir eru Gyðingar.

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hafði þetta að segja eftir fyrri leik liðanna: „Þetta var mjög sérstakt þegar það var verið að berja á hurðarnar. Svona verður þetta í þessu einvígi og vonandi lendum við ekki í ÞESSU aftur. Þetta fer í reynslubankann. Það er dapurt að vera ekki með fólkið okkar í stúkunni á okkar heimavelli. Það er erfitt að sætta sig við þetta.“


mbl.is Vonandi lendum við ekki í þessu aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótur leikur Kristins Rafnssonar

„Ekki leika þennan leik!“ Sagði Kristinn Rafnsson, ritstjóri Wikileaks, sem áskorun á stúlkur íslenska handknattleiksliðsins, um að leika ekki handknattleik við Ísrael.

Ég skora hins vegar á Kristinn, sem virðist undir sama Gyðingahatursanda og Hitler var, að hætta sjálfur að leika þann leik að ljúga að almenningi á Íslandi og víðar.

Hann kallar stúlkurnar frá Ísrael, þjóðarmorðingja, af því að þær hafa tekið þátt í vörnum lands síns gegn þjóðarmorðingjum sem réðust á land þeirra 7. október 2023, með því einbeitta markviði að útrýma öllum Ísraelsmönnum.

Blóði á annað þúsund landa Ísraelsstúlknanna var úthellt í því þjóðarmorði sem Hamas hóf.

Ekkert er því meira fjarri sanni en málflutningur Kristins. Hér er Kristinn að bera blak af hinum raunverulegu þjóðarmorðingjum, með því að snúa hlutunum á hvolf og styðja þannig þjóðarmorð Hamas.

Þetta er ljótur leikur. En spyrjum að leikslokum.


mbl.is Ísland valtaði yfir Ísrael - HM-sætið nánast í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan óttast “strí𔝠áhorfenda móti Ísrael

Lögreglan á Íslandi treystir ekki áhorfendur hér, sem myndu sækja handknattleik kvenna, milli Íslands og Ísrael. Gyðingahatrið sé slíkt hér á landi.

Þannig biður Ísrael til Guðs:

“Drottinn, sveig þú himin þinn og stíg niður, snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki. Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum, skjót örvum þínum og skelf þá. Rétt út hönd þína frá hæðum, hríf mig burt og bjarga mér úr hinu mikla mannhafi, af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál, og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.” (Sálmur 144:5-8).

Svar Ísraels Guðs:

“Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð Djöfulsins. Því að baráttan sem þið eigið í er ekki við menn af holdi og blóði heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.” (Ef. 6:11-12).


mbl.is Lögregla vill enga áhorfendur þegar Ísrael kemur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Örn Ragnarsson

Höfundur

Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðmundur Örn Ragnarsson
Guðfræðingur
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »